Smá um mig

Ég heiti Anna Sigga og er forfallinn föndrari af lífi og sál.

Ýmiskonar föndur/skapandi vinna hefur fylgt mér frá því ég var barn, en ég myndi segja að móðir mín og ömmur séu mínar handavinnu fyrirmyndir. 

Ég hef verið hvað lengst í pappírsföndri og má þar helst nefna albúmagerð, kortagerð, ýmiskonar bækur og minningaralbúm (scrapbooking).

Prjónaskapur er einnig stór partur af mínu lífi og því ákvað ég að fara útí að útbúa mín eigin prjónamerki og aðra aukahluti er viðkemur prjónaskap. Polymer leir er mitt nýjasta áhugamál og notast ég við það efni í að útbúa prjónamerki og eyrnalokka.

Ég fór í veikindaleyfi, í kjölfar veikinda, snemma árs 2023 og má því segja að föndur og skapandi vinna hafi átt þátt í því að bjarga minni andlegu heilsu á þeim tíma. Í framhaldi af því ákvað ég að láta á það reyna að reka litla velsun á netinu þar sem ég gæti stundað mitt helsta áhugamál af krafti.

Allt sem ég geri er handunnið af mér, og ég hlakka mikið til að deila sköpunargleðinni með ykkur.

Person wearing sunglasses and a knitted sweater, holding a glass of iced coffee with a straw.

Hafa samband